02.05.1924
Efri deild: 61. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (322)
1. mál, fjárlög 1925
Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):
Það er rjett, sem hæstv. forsrh. (JM) sagði, að það hefði verið af misskilningi, að kennaralaun dr. Alexanders Jóhannessonar voru ekki tekin upp í frv., en í þeim misskilningi á hann sjálfur sinn þátt. En margir nefndarmenn bjuggust við því, að honum yrði alt að einu haldið við háskólann, og vænta þess því, að hæstv. stjórn sjái einhver ráð til þess, að svo megi verða. Hann heldur launum sínum til næstu áramóta, og jeg geri ráð fyrir því, að næsta þing telji ekki eftir, að honum verði veitt laun fyrir árið 1925.
Þegar jeg talaði áðan, vissi jeg ekki um hina skriflegu brtt. hv. 5. landsk. (JJ), þó að jeg hafi að vísu mælt með henni fyrirfram.
Vil jeg skjóta því til hæstv. forseta, að hann gefi 10 mínútna fundarhlje til þess að þdm., og sjerstaklega fjvn., gefist kostur á því að ráða það við sig, hvort hleypa skuli frv. til Sþ. vegna þessarar brtt.