05.05.1924
Efri deild: 62. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í D-deild Alþingistíðinda. (3266)

147. mál, holdsveikraspítalinn

Sigurður Jónsson:

Það er erfitt fyrir okkur, sem ekki erum læknar, að segja álit okkar í þessu máli. Sýnist mjer besti og tryggasti vegurinn vera að treysta dómi sjerfræðinga í þessari grein. Finst mjer það yfirleitt mjög misráðið að vilja þrýsta gamalmennum inn í spítalann. Veit jeg, að mörgum yrði ekki verra gert.

Tilfinning mín bannar mjer að greiða þessu máli atkvæði mitt.