01.03.1924
Neðri deild: 12. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í D-deild Alþingistíðinda. (3291)

53. mál, prófessorsembættið í íslenskri bókmenntasögu

Forseti (BSv):

Þar sem mótmæli hafa komið fram gegn einni umræðu, en atkvgr. er óskýr, vil jeg leyfa mjer að skera úr málinu á þann hátt, að umræður skuli tvær, og skoða jeg það samþykt án atkvgr., ef enginn mælir í gegn.

Samkv. till. forseta (BSv) var samþ., án atkvgr., að tvær umr. skyldi hafa um málið.