12.04.1924
Neðri deild: 49. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í D-deild Alþingistíðinda. (3345)

98. mál, gullkaup til seðlatryggingar

Fjármálaráðherra (JÞ):

Það er misskilningur hjá hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að þessi gullforði sje minni en hann átti að vera og að hann sje geymdur annarsstaðar en vera ber. Í raun og veru er hann meiri en lögin áskilja, og er síst ástæða til að beina aðfinslum að bankanum fyrir þetta.