07.03.1924
Efri deild: 13. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í D-deild Alþingistíðinda. (3381)

63. mál, sparnaðarnefnd

Flm. (Jónas Jónsson):

Jeg er því samþykkur, að málið verði athugað í nefnd. En taka vil jeg fram, vegna væntanlegrar sparnaðarnefndar, að æskilegast væri, að hv. fjvn. drægi ekki mjög lengi að skila áliti sínu, því eftir því sem líður á þingtímann, verða annirnar meiri og erfiðara fyrir nefndina að ná svo góðum árangri starfs síns sem skyldi.