25.04.1924
Neðri deild: 55. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í D-deild Alþingistíðinda. (3389)
81. mál, starfsmannahald við landsverslunina og áfengisverslunina
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg get verið stuttorður, ætla aðeins að gefa skýrslu um laun starfsmanna við landsverslunina.
Forstjóri hennar hefir á mán. 1000 kr. skrifstofustjóri 850 —
aðalbókhaldari 700 —
gjaldkeri 600 —
afgreiðslustj.tóbaksdeildar..600 —
aðstoðarm. við bókhald o. fl.... 600 — —umsjónarm. olíugeymslu .... 550 — afgreiðslumaður 525 —
annar afgreiðslumaður ........... 420 —
brjefritari og þýðandi.............. 375 —
þriðji afgreiðslumaður ................... 300 —
aðstoðarstúlka við bókhald ............. 275 —
sendisveinn o. fl 200 —
þá hafa endurskoðendur, sem báðir eru ráðnir af stjórnarráðinu, 2400 kr. árlega, hvor um sig. Auk þessa vinna jafnaðarlega við verslunina 6 verkamenn og bílstjórar við afgreiðslu vara og flutning um bæinn.
Sex starfsmennirnir, sem jeg nefndi fyrst, vinna 10 tíma á dag, en hitt starfsfólkið 7 tíma, og vinnur það þó lengur, þegar á þarf að halda.
Jeg hefi þá ekki hugsað mjer að segja meira, fyr en jeg heyri athugasemdir fyrirspyrjanda.