02.05.1924
Efri deild: 61. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í D-deild Alþingistíðinda. (3421)
148. mál, afstaða til stjórnmálablaða
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg tel það nauðsynlegt, vegna sóma míns og kjördæmis míns, að enginn maður geti nokkru sinni orðið í vafa um það, hvernig jeg hafi greitt atkvæði, þegar um það var að tefla, hvort leyft skyldi að bera upp á Alþingi fyrirspurn eins og þá, sem hjer liggur fyrir á þskj. 515. Leyfi jeg mjer því að beiðast þess, að hæstv. forseti láti atkvgr. fara fram með nafnakalli.