15.02.1924
Sameinað þing: 1. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (3437)

Konungsboðskapur

Stóð þá upp Jóhannes Jóhannesson, þm. Seyðf., og mælti:

Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn tíundi!

og tóku þingmenn undir það með níföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi elsta þingmanninn, Sigurð Jónsson, 2. landsk. þm., til þess að gegna forsetastörfum þar til er kosinn vœri forseti sameinaðs þings.

Aldursforseti (SJ) gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.