19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (3466)
93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vildi aðeins beina fyrirspurn til þeirra manna hjer í hv. deild, sem jeg hygg að sjeu kunnugastir sjávarútvegi og öllu, sem þar að lýtur. En það eru þeir hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ). Hjer fyr á þinginu kom fram frv. frá hv. 1. þm. G.-K. (ÁF), sem átti að verða til þess að draga úr atvinnuskorti í Hafnarfjarðarkaupstað, og var þar bent á sjerstaka leið að því marki. Jeg fylgdist vel með umr. um þetta frv. og ásetti mjer helst að fylgja að málum þeim manninum (ÁF), sem jeg tel reyndastan og að öllu hinn öruggasta í því, sem að þessum málum lýtur. En hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) mótmælti þessu frv., og taldi það hættulegt fyrir útveginn í heild sinni, vegna ofmikillar fiskframleiðslu, ef skipum væri fjölgað um of, sem stunduðu fiskiveiðar. Of mikill fiskur kæmi þá á markaðinn, og verðið fjelli. Nú vil jeg spyrja hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), hvort ekki muni verða sömu afleiðingar af því, ef þessi leið er farin, sem nú er stungið upp á. Háttv. frsm. (ÁF) sagði, að það væri ætlast til þess að auka skipastólinn allmikið frá því, sem nú er. Virðist mjer því sú hætta, sem hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) benti á, ef fyrri leiðin hefði verið farin, liggja eins við borð, verði þetta samþ.
Jeg er óráðinn í því, hvernig jeg greiði atkvæði um þetta mál. Mun það fara eftir þeim upplýsingum, sem jeg vænti, að fram muni koma.