10.03.1924
Neðri deild: 19. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

20. mál, kennaraskóli

Pjetur Ottesen:

Jeg þarf ekki að svara því, sem hv. þm. Str. (TÞ) sagði. Þau orð, sem hann hafði eftir mjer og lagði út af, hefi jeg aldrei sagt. Það er því vitanlega alveg bygt á tómri misheyrn eða að öðrum kosti búið til í illum tilgangi eða af illum hvötum, og ætla jeg, að sú tilgátan sje líklegri.