25.03.1924
Efri deild: 28. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
20. mál, kennaraskóli
Sigurður Eggerz:
Það er aðeins stutt athugasemd, sem jeg ætla mjer að gera. Jeg vil geta þess, að þó að námstíminn sje ekki lengdur nema um 1 mánuð, þá geta nemendur haft mjög mikið gagn af því, því að í þessum skóla eru að sögn mjög námfúsir menn, er nota tímann yfirleitt mjög vel. Og ef þeim er í skólanum opnuð leið til að læra ensku, þá geta þeir síðar numið hana betur án kenslu, og þar með fengið aðgang að hinum enska bókmentaheimi, en það mun auðvitað auka mikið víðsýni þeirra og þekkingu. Og mjer finst jeg hafa mikla ástæðu til að ætla, að svo muni verða, því að jeg hefi einmitt heyrt, að kennaraefni leggi alveg ótrúlega mikla rækt við nám sitt. Erlendis voru nýlega nokkur kennaraefni á námsskeiði, og var lokið lofsorði á þá fyrir dugnað við námið. Þessir menn geta því bætt ótrúlega miklu við þekkingu sína á einum mánuði, og því meiri og víðtækari, sem þekking þeirra verður, því meiri verður auðvitað árangurinn af starfi þeirra. Og þeir, sem eiga að ala upp æskulýð þjóðarinnar, þurfa auðvitað að vera sem best mentaðir, og umfram alt sem víðsýnastir. Og jeg hefi alveg sjerstaka tröllatrú á því, að góð alþýðumentun sje sá besti skerfur, sem vjer getum lagt til þjóðarbúskaparins.