25.03.1924
Efri deild: 28. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (482)
20. mál, kennaraskóli
Jóhann Jósefsson:
Hv. 1. landsk. gat vel sparað sjer þá athugasemd, sem hann var að gera við ræðu mína, því þau orð, sem hann hjelt fram að jeg hefði sagt, voru aldrei töluð. En jeg vil árjetta það, sem jeg sagði áður, og jeg fullyrði það, — og vísa máli mínu til stuðnings til reynslu fyrri ára, — að því lengra sem barnafræðslan hefir borist frá heimilunum og frá móðurknjám, þeim mun lakari hefir hún orðið.
Og mitt álit er, að þessi grein alþýðufræðslunnar beri ekki þeim mun betri ávöxt nú en hún gerði áður, að það samsvari því, sem meiru er til hennar kostað nú en þá, því að nú varpar fólk líka öllum sínum áhyggjum í þeim efnum upp á skólana.