01.03.1924
Efri deild: 9. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
19. mál, nauðasamningar
Forsætisráðherra (SE):
Eins og kunnugt er, eru þeim ekki margir vegir færir, er ófærir verða til að greiða skuldir sínar.
Beinasta leiðin er gjaldþrot, ef ekki verður náð samkomulagi við skuldheimtumenn, en til þess að það geti orðið, þarf nú samþykki þeirra allra. Þriðja leiðin, sem að vísu er engin leið, er að láta alt reka á reiðanum.
Til þess að bæta úr þessu er frv. þetta fram komið. En eftir því getur skuldari, sumpart eftir að skiftarjettur hefir tekið bú hans til meðferðar og sumpart áður, samið við lögmætan meiri hluta skuldheimtumanna þannig, að bindandi sje fyrir hina.
Eru slík ákvæði mjög nauðsynleg, enda alsiða erlendis. Stjórnin hefir notið aðstoðar prófessors Einars Arnórssonar við samning frv. þessa, og er jeg honum mjög þakklátur fyrir. Vona jeg, að frv. verði að lokinni umr. vísað til allshn.