06.05.1924
Neðri deild: 67. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2388 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

Starfslok deilda

forseti (BSv):

Fyrir þessum fundi liggur engin dagskrá, þar sem háttv. deild hefir nú lokið störfum sínum að þessu sinni, og er þessi fundur hennar því hinn síðasti. Vil jeg leyfa mjer að þakka hv. deildarmönnum góða samvinnu og árna þeim allrar giftu í framtíð og góðrar heimferðar utanbæjarþingmönnum.

Segi jeg svo fundi slitið.