29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (829)

100. mál, verðtollur

Fjármálaráðherra (JÞ):

Stjórnin vísar að öllu leyti til yfirlýsingar sinnar í gær um það, að hún mun framkvæma innflutningshöft á óþörfum varningi eftir því, sem frekast er unt án þess að ganga of nærri ríkissjóði, en tekur enga afstöðu til þess, hvort um þetta mál verði sett ný lög á þessu þingi eða notuð heimildin samkv. lögunum frá 8. mars 1920.