29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

100. mál, verðtollur

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil aðeins taka það fram, að það er mjög rangt að telja, að stofnað hafi verið til nokkurrar verslunar um þetta mál milli flokkanna.

Hinsvegar var það ekki nema eðlilegt, þótt Framsóknarflokkurinn vildi neyta allra meðala til að koma áleiðis því máli, sem hann telur einna þýðingarmest af öllum þeim, sem fyrir þinginu liggja.