24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

97. mál, landhelgissektir í gullkrónum

Forsætisráðherra (JM):

Jeg hefi að vísu ekki haft tíma til að athuga þetta frv. nákvæmlega, en jeg get í fljótu bragði ekki sjeð annað en að það megi vel svo vera. Það er mjög eðlilegt, að sektirnar hækki að krónutali eftir því, sem krónan fellur, og þar sem þetta virðist ekki valda neinum auknum erfiðleikum eða fyrirhöfn, þá sje jeg ekki betur en að þessi breyting sje á rökum bygð.