09.05.1925
Efri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2020 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)

20. mál, verðtollur

Jónas Jónsson:

Það stendur eins á um þetta mál og hið fyrra, að jeg gat ekki talað í því við 2. umr. Jeg fyrir mitt leyti skoða toll þennan óhafandi, en háttv. Nd. hefir með breytingum sínum gefið fyrirheit um það, að hann eigi að falla niður, og það er vonandi, að hann verði ekki framlengdur oftar.