11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2022 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

20. mál, verðtollur

Halldór Stefánsson:

Jeg vil ekki láta alveg ómótmælt þeim ummælum háttv. 2. þm. Reykv. (JBald), að örðugra sje að afnema verðtollinn eftir að þetta frv. hefir verið samþykt, Jeg lít svo á, að betra verði að afnema hann. Jeg geri ekki ráð fyrir, að honum verði kipt burtu í einu, heldur afnuminn smámsaman, þannig að tollstigsflokkarnir gangi undan tolli stig af stigi, en tollur á óþarfavarningi verði þó ef til vill látinn halda sjer.