07.04.1925
Efri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)

8. mál, verslunaratvinna

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg verð að segja, að jeg hefi ekki athugað útlenda löggjöf um þetta efni, og get því ekki svarað fyrirspurn hv. 1. landsk. (SE) að svo stöddu. Hinsvegar man jeg ekki betur en samskonar ákvæði sjeu í hlutafjelagalögunum okkar.