09.05.1925
Neðri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2115 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

8. mál, verslunaratvinna

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Jeg verð að segja, að það er talsvert algengt, að tillögur sjeu þannig bornar upp. í raun og veru er okkar till. víðtækari, og því vil jeg láta greiða atkvæði um hana fyrst. Hins vegar verð jeg að segja, út af því, sem hæstv. atvrh. (MG) sagði áðan, að jeg skil ekki, að hægt sje að fara eftir því, þó að eitthvert samkomulag hafi orðið í hv. Ed. um einhverjar till., heldur á að fara hjer eftir því, sem mönnum virðist best á fara.