16.03.1925
Neðri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)
79. mál, selaskot á Breiðafirði og uppidráp
Bjarni Jónsson:
Jeg vil aðeins þakka hv. landbn. meðferðina á mínu frv. Til þess að sanna orð hv. frsm. (HK) skal jeg endurtaka það, sem jeg sagði í framsöguræðu fyrir mínu frv., að jeg teldi rjett, að þessi tvö frv. yrðu sameinuð og eitt frv. steypt upp úr þeim. Það er þess vegna langt frá því, að jeg þykkist nokkuð, þó að frv. mitt komi ekki aftur fram, úr því sem komið er. Mjer má vitanlega á sama standa, í hvaða formi frv. mitt verður samþykt.
Jeg býst við að þurfa ekki að bæta löngu máli við það, sem jeg sagði við 1. umr. frv. míns um tilefni þess. Á svokölluðu Breiðasundi hefir verið ófriðað svæði, þar sem hefir mátt skjóta sel eftir vild. Nú er því svo háttað, að þar örskamt frá eru selalagnir allmiklar, og hefir þótt við brenna, að menn hafi freistast til að fara í lagnir þessar og skjóta þar, með því að þær eru svo nálægt ófriðlýstu svæði. Þess vegna þykir mjer rjett að færa takmörkin ú.t, til þess bæði að menn freistist síður til að skjóta í lögnunum við Breiðasund og svo líka til þess, að hægara verði um eftirlit með ólöglegum selaskotum um þær slóðir.
Þess ber og að geta, að selalagnir á þessum slóðum gefa mjög mikið af sjer. T. d. geta tekjur af selveiði á Staðarfelli orðið alt að 2000 kr. árlega, og yfirleitt gefa þær almenningi þar vestra svo mikið í aðra hönd, að ekki sýnist vera áhorfsmál að friða lagnirnar alveg, þó að nokkrir menn frá Stykkishólmi og grend hafi undanfarið skotið sel þar inni á sundinu sjer til gamans og ef til vill líka til gagns. Það gagn vegur aldrei á móti hinu, sem ábúendur selveiðijarðanna hafa af því, að lagnir þeirra sjeu algerlega friðaðar. Þess vegna mælir full sanngirni með því, að frv. mitt, sem nú er orðið brtt. háttv. landbn. við frv. á þskj. 118, verði samþykt.
Eins og jeg hefi áður tekið fram, er svæðið fyrir framan ósa laxveiðiánna, sem í Hvammsfjörð renna, ófriðað eftir sem áður, og þar má því skjóta sel eftir vild, svo að hann fái ekki hindrað laxgöngur í árnar. Jeg hygg, að jeg þurfi ekki að fara frekar út í þetta mál, enda kemst jeg þá varla hjá því að endurtaka það, sem jeg sagði í framsögu fyrir frv. mínu. Jeg hefi tekið þetta fram vegna þess, að hv. frsm. (HK) sagðist vera ókunnugur þessari hlið málsins.