06.04.1925
Efri deild: 48. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2370 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)

91. mál, einkenning fiskiskipa

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Sjútvn. þessarar hv. deildar hefir komið sjer saman um að samþykkja þá breytingu, sem gerð hefir verið á þessu frv. í hv. Nd., og er till. hennar á þá leið, að þetta frv. verði samþykt eins og það er nú.