07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2594 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)

74. mál, slysatryggingar

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Það er ekki annað um frv. að segja en það, að nefndin hefir athugað breytingar þær, sem hv. Ed. hefir gert á því, og fara þær flestar í þá átt að færa frv. nær sínu upprunalega formi. Nefndin mælir því með, að frv. verði samþykt.