13.05.1925
Efri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3278 í B-deild Alþingistíðinda. (2050)
104. mál, útflutningsgjald
Ingvar Pálmason:
Jeg ætla nú ekki að verða mjög langorður, en það var aðallega hv. þm. Vestm. (JJós), sem gaf mjer tilefni til þess að standa upp. Hv. þm. (JJós) byrjaði með því að geta þess, að einhver af deildarmönnum hefði talað um raunir þessarar deildar, en jeg ætlast nú til þess, að þótt hv. þm. (JJós) hefði ekki kvartað undan þessum raunum, að hann hefði ekki farið að bæta á þær, því að mjer finst, að þessi ræða hv. þm. (JJós) hafi lítið bætt þær umr., sem hjer hafa farið fram, því að mjer finst það varla sæmandi að koma þannig fram fyrir hönd fjhn., og jeg vildi gjarnan lýsa yfir þessu, því að annars væri hægt að skilja það svo, sem þessi hv. þm. (JJós) hefði eitthvert umboð frá fjhn. til þess að ámæla hv. 5. landsk. (JJ) fyrir framsögu hans í málinu; en frá minni hendi hefir hv. þm. (JJós) það ekki, og síst þegar hann getur ekki gert það hóflegar. Jeg hefi álitið hv. þm. Vestm. stiltan mann, en ræða hans var alls ekki stillileg. Jeg vildi aðeins taka þetta fram, en að öðru leyti gaf ræða hans mjer ekki tilefni til að fjölyrða um málið; en úr því að jeg stóð upp, þá ætla jeg að bæta við nokkrum orðum, vegna þess að hæstv. fjrh. (JÞ) hreytti að Framsóknarflokksmönnum yfirleitt því, sem hann beindi upphaflega að frsm. (JJ). Hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, að með niðurlagning steinolíuverslunarinnar væri tekinn speni út úr munni hv. 5. landsk. (JJ), en í síðari ræðu sinni beindi hæstv. ráðherra (JÞ) þessu að Framsóknarflokknum yfirleitt. Jeg vildi ekki láta þessu ómótmælt, því að hve vel sem hæstv. fjrh. (JÞ) tekst að sanna alt, sem hann sagði í dag, þá verður honum erfitt að sanna þetta. Jeg hefi ekki annara hagsmuna að gæta í þessu efni en sem útgerðarmaður, og það tel jeg mjer skylt að gæta þeirra, hvort sem er á Alþingi eða annarsstaðar, og það, að jeg missi nokkra dúsu við það, að steinolíuverslunin verður lögð niður, sýnir fram á það, hvað jafnvel ráðherrar eru óvandir að staðhæfingum sínum gegn alsaklausum mönnum, sem ekkert hafa gert þeim annað en hafa aðrar stjórnmálaskoðanir en þeir, og þá verð jeg að segja það, þegar verið er að tala um þá raun, sem lögð sje á hv. þdm., þá veldur það mjer þyngstra rauna að heyra mann, sem er jafnhátt settur bæði utan þings og innan, koma með slík ummæli. Jeg skal svo ekki fjölyrða frekar um málið, en umr. hafa snúist þannig í dag, að jeg taldi mjer ekki óleyfilegt að ræða málið á öðrum grundvelli en það liggur fyrir, eftir því sem gert hefir verið í dag.