13.05.1925
Efri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3324 í B-deild Alþingistíðinda. (2093)

34. mál, mannanöfn

Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Jeg vil enn lýsa hrygð minni yfir því, að hv. 1. landsk. (SE) skuli ekki gleðjast, þegar hann sjer, að helsti maður Sjálfstæðisflokksins er studdur svo mjög af stóru flokkunum sem hjer er gert, svo að jafnvel Heródes og Pílatus sættast á að styðja þann litla og sundurleita flokk. Finst mjer sannarlega, að hann ætti að vera okkur hv. 1. þm. Rang. (EP) þakklátari en hann er fyrir það, að við styðjum þetta flokksmál hans og erum fúsir til að ljá okkar veiku krafta til þess að koma því fram.