13.05.1925
Efri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3350 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

81. mál, sáttatilraunir í vinnudeilum

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg skal leyfa mjer að geta þess, að allshn. hefir lítillega athugað þetta frv., eftir því sem tími hefir unnist til, en það er nú orðið svo áliðið þingtímans, að ekki er tími til að vísa því til nefndar, ef það á að ganga fram sem lög frá þessu þingi, en jeg held, að mjer sje óhætt að fullyrða, að allshn. sjái engin vandkvæði á því, að þetta frv. nái fram að ganga eins og það liggur fyrir.