14.05.1925
Efri deild: 78. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3350 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

81. mál, sáttatilraunir í vinnudeilum

Jónas Jónsson:

Jeg vil aðeins bæta því við það, sem hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) sagði um þetta mál við 1. umr., að við í allshn. höfum athugað mál þetta allítarlega, og þó það sje auðvitað ekki líklegt, að sáttatilraunir þessar geti stöðvað allar deilur um kaupgjald og vinnutíma, þá getur það ekki skaðað, heldur frekar bætt. Og með tilliti til þess, að það geri frekar gagn og ekki tjón, þá er jeg fyrir mitt leyti ásáttur um, að frv. gangi nú fram, en ekki hafi gefist sá tími til að athuga það, sem þörf er á um vandasöm mál.