09.02.1925
Efri deild: 2. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (2149)

Kosning fastanefnda

forseti (HSteins):

Fjhn. þessarar háttv. deildar hefir oft áður verið skipuð 5 mönnum, og með því að útlit er fyrir, að mörgum málum verði á þessu þingi vísað til þeirrar nefndar, þá tel jeg rjettast, að hún verði einnig nú skipuð 5 mönnum.