17.04.1925
Neðri deild: 58. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3353 í B-deild Alþingistíðinda. (2169)

Forsæti ráðuneytisins

forseti (BSv):

Jeg vil geta þess hjer, utan dagskrár, að einn hv. þdm., hv. 1. þm. G.-K. (ÁF), er sextugur í dag, og vil jeg af því tilefni óska honum allra heilla, og bið jeg hv. þdm. að taka undir þá heillaósk með því að standa upp.

(Allir deildarmenn stóðu upp úr sætum sínum).