15.05.1925
Efri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3359 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)

Starfslok deilda

forseti (HSteins):

Þá er verkefni þessa 79. og síðasta fundar deildarinnar á þessu þingi lokið. Þakka jeg hjer með öllum hv. þdm. góða samvinnu, og sjerstaklega vil jeg beina þakklæti mínu til formanna fastanefnda deildarinnar fyrir skjóta afgreiðslu mála og yfirleitt vel unnin störf. Jeg er þess vitandi, að ef fastanefndir í hv. Nd. hefðu unnið eins rösklega og vel og hjer í Ed., hefði þingtíminn getað orðið að mun styttri. Óska jeg svo öllum háttv. þingdeildarmönnum góðrar heimferðar og góðrar líðanar í framtíðinni.