15.05.1925
Efri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3359 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)
Starfslok deilda
Einar Árnason:
Um leið og deildin lýkur störfum sínum, leyfi jeg mjer að þakka hæstv. forseta fyrir röggsama, óhlutdræga en jafnframt lipra fundarstjórn. Jeg er viss um, að allir eru sammála um það, bæði mótflokksmenn hans sem aðrir, að hæstv. forseti hafi leyst störf sín mjög vel af hendi. Óska jeg honum svo gleðilegrar og góðrar heimkomu og vona, að við megum hjer allir heilir hittast á næsta þingi.