02.03.1925
Efri deild: 20. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í C-deild Alþingistíðinda. (2205)
19. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg var því miður ekki við, er frv. þetta var lagt fram í deildinni, og hefi ekki haft tök á að kynna mjer umræðurnar.
Það gleður mig mjög, að hæstv. forsrh. hefir lýst því yfir, að landsspítalamálið ætti að ganga fyrir öllum öðrum málum. Yfirlýsing þessi þykir mjer svo mikils virði, að mjer finst allir þröskuldar í máli þessu lágir orðnir.
Að jeg hafi farið niðrandi orðum um sparnaðarnefndina, er ekki rjett. Jeg væni hvorki hana nje hæstv. stjórn um ódrengskap í þessu máli. Stjórnin hefir auðvitað lagt frv. þetta fram í góðum tilgangi. í sjálfu sjer finst mjer 20–25 þús. kr. ekki óveruleg upphæð, og væru ekki aðrar leiðir heppilegri til þess að afla landsspítalanum fjár, gæti jeg ef til vill aðhylst þessa. En eftir þessar umr. í dag, er jeg svo bjartsýn, að mjer virðist aldrei hafa horft vænlegar við fyrir landsspítalamálinu en nú. En að lokum tek jeg það fram, að jeg hefi alls ekki vænt sparnaðarnefndina um ódrengskap, þó að jeg gæti ekki átt samleið með henni í þessu máli.