02.03.1925
Efri deild: 20. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (2211)
19. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Forsætisráðherra (JM):
Jeg veit ekki, hve þetta á lengi að ganga. Það má búast við, að á eftir þessari þriðju ræðu hv. 1. landsk. (SE) komi sú fjórða, fimta og sjötta, ef svona heldur áfram. Svo að jeg viki þó aðeins að tali hans um utanríkismálin, þá verð jeg að segja, að mjer er ekki kunnugt um, að meðferð á þeim hafi verið önnur í hans tíð en nú. Að vísu var þá sendiherra í Khöfn, svo að ekki kom til þess, að fela öðrum manni störf hans. En þegar það embætti var lagt niður, var það fyrir atbeina þingsins en ekki minn. Jeg er alveg sammála hv. 1. landsk. um það, að fje þurfi að veita aftur til þessa embættis, og það sem fyrst, því að það er óneitanlegt, að vjer höfum þótt setja ofan við afnám þess.
Þá segir hv. þm., að verið sje að fækka einkennum fullveldis vors út á við. Jeg man ekki eftir neinum afrekum hans í því efni í hans stjórnartíð. Það er skýrt tekið fram með konungsúrskurði, að vjer förum með vor utanríkismál sjálfir, og frekar þarf ekki vitnanna við. Annars get jeg ekki veríð að tefja tímann með frekari umræðum um mál, sem ef til vill fer ekki lengra.