11.02.1925
Efri deild: 4. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (2215)
22. mál, sóknargjöld
Forsætisráðherra (JM):
Jeg get látið mjer nægja, að vísa til greinargerðar þeirrar, sem hin svokallaða sparnaðarnefnd, sem samið hefir þetta frv., hefir látið fylgja því. Jeg hefi þar eiginlega engu við að bæta. Hjer er um það að ræða, að spara ríkissjóði meiri eða minni útgjöld. Því eins og nefndin hefir bent á, þá er ekki áhorfsmál að hækka það gjald, sem hjer ræðir um, eins og önnur. Þetta gjald hefir haldist óbreytt, þótt annað skyldugjald hafi hækkað allmjög, kirkjugjaldið. Jeg vona, að háttv. deild taki málinu vel, og láti nefnd athuga frv. rækilega.