12.02.1925
Efri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í C-deild Alþingistíðinda. (2252)

17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík

Forseti (HSteins):

Jeg sje ekki, að það sje næg ástæða til að taka málið af dagskrá, þótt þessir tveir þingmenn sjeu fjarstaddir, því að hjer verður, hvort sem er, ekki annað gert við málið en að vísa því til nefndar, og engum ætti að geta verið bagi í því. Jeg tek því málið ekki af dagskrá.