26.03.1925
Efri deild: 39. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2275)

17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík

Forsætisráðherra (JM):

Jeg vil taka það fram, að jeg tel athugasemd hv. 1. landsk. (SE) algerlega óþarfa. Hvað sparnaðinum viðvíkur, þá býst jeg við því, að ef stjórnin beitti sjer fyrir einhverjum sparnaði, þá. myndi þessi sami hv. þm. (SE) ekki lengi hugsa sig um áður en hann legðist þar á móti.