14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í C-deild Alþingistíðinda. (2344)
62. mál, vegalög Norðurlandsvegur
Bjarni Jónsson:
Jeg mundi ekki, að hv. 2. þm. Rang. (KIJ) var í þessari nefnd. Annars hefði jeg sjálfsagt látið í ljós undrun mína yfir því, að hann skyldi láta þetta mál fara svo illa karað frá nefndinni.
Hitt, sem jeg sagði um rökstuddar dagskrár, átti ekki þessi nefnd ein. Aðrar hv. nefndir í þessu þingi áttu vissulega bróðurpartinn af því, sem jeg sagði. En um vinnubrögð Alþingis yfirleitt er það að segja, að þar eru þau verstu vinnubrögð, sem jeg þekki, og líklega þau verstu á jarðríki. Þetta er hverju máli sannara og verður ekki móti mælt. Hv. þm. hefir lagt of mikið upp úr þessu um þennan eina mann, því að margir áttu að skifta á milli sín þessu, sem jeg sagði. Það getur verið rjett, að leita álits vegamálastjóra, en hitt er ekki rjett, að kasta allri skynsemi, láta hnýta í sig svartan ullarlagð og reka sig eftir vissum götum.
Jeg sje ekki ástæðu til að taka neitt aftur af því, sem jeg hefi sagt, en vænti þess, að háttv. deild samþykki frv. þetta.