13.03.1925
Neðri deild: 32. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (2485)
7. mál, sjúkratryggingar
Bjarni Jónsson:
Jeg skal ekki vera myrkur í máli við hæstv. atvrh. um afstöðu mína til þessa frv., sem fer fram á að fella úr gildi 14. og 17. gr. berklavarnalaganna. Er það fljótsagt, að jeg tel það með öllu ófært, og það engu síður, þó fá skuli varnir þessar í hendur sjóðum, sem stofnaðir væri í því skyni. Hæstv. atvrh. taldi, að af því mundi leiða sparnað mikinn, og efast jeg ekki um það, að því er snertir peninga. En það mundi lítt reynast sparnaður um heilsu og líf landsbúa.
Það er mælt, að ekki bregður mær vana sínum, og ætla jeg, að svo mundi enn fara um örlæti og risnu hrepps og bæjarsjóða sem fyr. Það verður viðlíka gaman að sjá, og þá er hríðefldir hreppstjórar þeysa á skaflajárnuðum og reka á undan sjer örvasa hreppsómaga. (TrÞ: Tíðkast það vestur í Dölum?) Bæði á Ströndum og í Dölum. Það tíðkast alstaðar. Það er mannúð fátækralaganna.
Tilgangurinn með berklavörnunum er sá, að útrýma sýki, sem hefir breiðst út og heldur enn áfram að breiðast út, til meira tjóns fyrir þessa þjóð en tölum verði talið. Það væri sparnaður, ef slíkt tækist. Og til þess má ekki horfa í neinn kostnað.
Það er margt gott í 14. gr. berklavarnalaganna, en það er ókostur á henni, að þar er nokkuð minst á hreppstjóra og sveitastjórnir. Sakir þess ákvæðis hefir margur orðið að snúa aftur og enga bót fengið meina sinna.
Það liggur í augum uppi, að sýslurnar eru því vanfærari um að bera þennan kostnað sem fleiri þurfa hans með. Öll þjóðin á að borga þetta, á sama hátt og almennar sóttvarnir. Og þessar sjóðstofnanir mundu vafalaust verða til þess að draga úr aðgerðum í þessu máli, draga úr vörnunum. Jeg er því mótfallinn frv., en jeg er með hverjum þeim lögum, sem svifta sveitastjórnir allri íhlutan um berklavarnirnar.
Það er ekkert við því að segja, þó að stofnaðir sjeu sjóðir til þess að gegna augnabliks þörf, en það er oftrú á rausn og mannúð og skilning sveitastjórna, ef þess er vænst, að þær vinni upp 100 ára vanrækslu feðra vorra og langafa með því fje.