19.03.1925
Neðri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í C-deild Alþingistíðinda. (2517)
33. mál, lærði skólinn
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Af því að hv. þm. Dala. (BJ) var að gefa í skyn, að okkar stefna í uppeldsmálum væri nokkuð sama, vildi jeg ekki láta því ómótmælt. (BJ: Jeg sagði það ekki, jeg talaði um, að úrlausnin væri hin sama.) Jeg hygg, að það yrði þjóðinni til ógæfu, ef hann fengi að ráða miklu um fræðslumálin. Hann (BJ) vill afnema skólaskyldu barna, en innleiða skólaskyldu unglinga. (BJ: Jeg hefi ekki flutt neina till. um skólaskyldu unglinga á þessu þingi.) Nei, en það er alkunnugt, að það er stefna hv. þm. (BJ), og þetta frv. um lærðan skóla, sem hv. þm. hefir lagt hjer fyrir þingið, er í samræmi við þá stefnu. Mín stefna í málinu er að halda skólaskyldu barna, en láta skólagöngu unglinga vera frjálsa, og slíta svo ekki lærða mentun alveg úr sambandi við alþýðumentun, þar sem hv. þm. Dala. (BJ) vill láta latínuna kljúfa alt í sundur, svo að skólarnir skiftist í tvo flokka, lærða og ólærða. Jeg hefi jafnan verið í beinni andstöðu við þessa stefnu hv. þm. (BJ), og vildi því ekki sitja undir hinu óverðskuldaða „lofi“ hv. þm. Dala.