07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í C-deild Alþingistíðinda. (2609)

110. mál, aðflutningsbann á heyi

Sigurjón Jónsson:

Mjer skilst, að ef dagskráin verður samþ., eins og hún er nú orðuð, með brtt. frá hv. þm. Borgf. (PO), þá sje þar með bannaður innflutningur á heyi frá öllum löndum, jafnt þeim, sem engin sýkingarhætta í þessu tilfelli getur stafað frá, svo sem Noregi. Jeg vil vekja athygli hv. þm. (PO) á því, hvort ekki sje ástæða til þess, að gera hjer undantekningar; annars er hjer um algert aðflutningsbann að ræða.