07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

110. mál, aðflutningsbann á heyi

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg er búinn að lýsa yfir því, að jeg sjái mjer ekki fært að nota í þessu tilfelli lagaheimildina frá 1920, og vegna þessarar yfirlýsingar minnar hefir hv. frsm. (PÞ) þegar tekið dagskrá sína aftur. Jeg sje nú líka, að hv. þm. Str. (TrÞ) er að lesa umræðurnar um lögin frá 1920, og mun hann þá sjá það sjálfur, að þessi lög eiga hjer ekki við.