07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í C-deild Alþingistíðinda. (2619)
110. mál, aðflutningsbann á heyi
Pjetur Ottesen:
Hæstv. forseti gat þess, að jeg hefði tekið aftur mína dagskrá, en það gerði jeg, eftir að hæstv. ráðh. (MG) hafði lýst því yfir, að hún gæti ekki samrýmst lögunum. En áður hafði jeg ekki heyrt yfirlýsingu hans um þetta. Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) hefir nú borið fram þriðju dagskrána, en jeg felli mig illa við það, að vera að gefa stjórninni undir fótinn með að gefa út bráðabirgðalög. Það er vafasamur hlutur, og alls ekki heimilt, meðan þing stendur.
Þar sem allvíða kennir nauðsynja á að hafa vakandi auga á innflutningi á heyi, sökum sýkingarhættu búpenings, þá verður slíkum ráðstöfunum best við komið hjer með því að samþ. frv., en hitt er óforsvaranlegt, að skella skolleyrum við þeirri hættu, sem búpeningi landsmanna getur stafað af því, ef sýkin bærist hingað, og því fremur ber að fresta ekki slíkum ráðstöfunum sem innflutningur á útlendu heyi er undir flestum kringumstæðum ónauðsynlegur.