14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)

41. mál, vegalög Borgrnes og Eyjafjarðarbrautir

Ágúst Flygenring:

Það er nú orðið sýnilegt, að það getur ekki orðið, að frv. þetta verði samþ., fremur en nokkurt hinna, og væri því rjettast að taka þau öll aftur í þetta sinn. Að minsta kosti tek jeg brtt. mínar aftur og fer ekki að fara í nein hrossakaup um þær, þó að aðrir hv. þm. sjeu þess ekki ófúsir með sín frumvörp.