12.02.1925
Efri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í C-deild Alþingistíðinda. (2739)
18. mál, fjöldi kenslustunda fastra kennara við ríkisskólana
Forsætisráðherra (JM):
Jeg staðhæfi það, sem jeg sagði áður, að mikil kensla getur það ekki talist, þótt forstöðumenn skólanna kenni 3 stundir á dag. Það er ekki til neins að vera að segja mjer það.
Að jeg sje ókunnugur starfi skólastjóra heimavistaskólanna, neita jeg algerlega. Jeg er svo að segja uppalinn í heimavistaskóla og þekki mjög vel, hvernig þar hagar til. (JJ: En forsrh. hefir aldrei verið kennari, og því síður stjórnað slíkum skóla). Nei, en jeg þekki samt sem áður vel til þess starfs, er öll stjórn skólanna heimtar. Og einmitt á þessari minni reynslu byggi jeg. Það, að hjer er alls ekki krafist neins, sem er ósanngjarnt.