28.02.1925
Neðri deild: 22. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í C-deild Alþingistíðinda. (2853)

65. mál, byggðarleyfi

Flm. (Bernharð Stefánsson):

þar sem jeg flutti frv. þetta á síðasta þingi og gerði þá grein fyrir því, get jeg látið mjer nægja að vísa til þess, sem jeg sagði þá. Hv. þd. tók frv. vel í fyrra, svo að það gekk tregðulaust til nefndar. Nál. og frv. var þó aldrei tekið til 2. umr., og dagaði því uppi.

Jeg efast ekki um, að hv. deild muni nú leyfa því að ganga jafnlangt og í fyrra, en sje ekki ástæðu til að fara frekari orðum um það. En þrátt fyrir það, þótt nefnd hafi haft málið til meðferðar í fyrra, álít jeg rjett, að það sje athugað í nefnd að nýju, og legg því til, að því verði vísað til hv. allshn., að þessari umr. lokinni.