29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í C-deild Alþingistíðinda. (2940)

95. mál, kynbætur hesta

Pjetur Ottesen:

11. mars s.l. var vísað til hv. landbn. frv., sem við hv. 2. þm. Skagf. (JS) og jeg vorum flm. að, um kynbætur hesta. Þar sem það hefir þegar verið 7 vikur í nefnd, án þess að neitt hafi heyrst um afgreiðslu þess, en málið hinsvegar mikilsvert, þá vildi jeg mælast til þess, að hæstv. forseti hlutaðist til um, að það yrði afgreitt sem fyrst frá nefnd.