31.03.1925
Neðri deild: 47. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í C-deild Alþingistíðinda. (2965)
108. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Flm. (Árni Jónsson):
Jeg get verið fáorður um þetta frv. Málið er ekki stórvægilegt, og býst jeg við, að frv. geti gengið óbreytt gegnum hv. deild. Frv. er flutt að tilhlutun nokkurra manna hjer í bæ, sem hafa áhuga á, að þjóðleikhússjóðurinn eflist sem fyrst og sem best, enda er ekki síður ástæða til að leggja skatt á þær skemtanir, sem hjer um ræðir, en ýmsar aðrar. Þetta munar litlu fyrir hvern einstakling, en gæti aukið sjóðinn um nokkur þúsund krónur á ári hverju. Jeg þarf svo ekki að fara fleiri orðum um þetta, en geri að tillögu minni, að frv. verði vísað til hv. mentmn.