28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í C-deild Alþingistíðinda. (3056)

26. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. meirihl. (Sigurður Eggerz):

Jeg kannast fullkomlega við nefndarálit það, sem háttv. þm. Vestm. og jeg rituðum undir á síðasta ári. Í því er ekkert ósamræmi við það, sem jeg nú hefi haldið fram, því jeg bið háttv. þm. að veita því eftirtekt, að það er seðlaútgáfan, sem jeg segi, að muni verða Landsbankanum til óhappa, ef hann fær hana. Annars er það ákaflega óþægilegt að fá slíkar athugasemdir, eftir að maður hefir ekki leyfi til að tala nema svo stutt.