19.03.1925
Efri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

4. mál, fjáraukalög 1924

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Eins og nál. ber með sjer, þá hefir fjvn. þessarar hv. deildar athugað frv. þetta, og leggur hún það til, að frv. verði samþykt óbreytt. Hv. deildarmenn hafa engar brtt. gert við frv., svo að jeg vona, að það þurfi engum deilum að valda.

Jeg mun ekki minnast neitt á einstaka útgjaldaliði frv., en aðeins geta þess, að þeir eru allir annaðhvort fyrirfram samþyktir af þinginu eða að öðrum kosti sjálfsagðir og þegar greiddir úr ríkissjóði.